Vinna greinilega á hraða snigilsins

Birgir Þórarinsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
Birgir Þórarinsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. mbl.is/Sigurður Bogi

„Ekkert lát er á straumi hælisleitenda til landsins. Fjölmennasti hópurinn er frá Venesúela enda auglýsa ferðaskrifstofur þar í landi íslenska velferðarkerfið sérstaklega,“ sagði Birgir Þórarinsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, á Alþingi í dag undir liðnum störf Alþingis. Hann gagnrýndi hraða kærunefndar útlendingsmála sem hann sagði hafa hugsað málin varðandi málefni hælisleitenda frá Venezúela í hálft ár án niðurstöðu.

„Álagið á sveitarfélögin á suðvesturhorninu er mikið, samráðsleysi ríkir að hálfu hins opinbera við sveitarfélögin, húsnæði er á þrotum og viðhorf almennings orðið neikvætt. Kærunefnd útlendingamála ber ábyrgð á því ófremdarástandi sem upp er komið í flóttamannamálum á Íslandi. Nefndin er sjálfstæð í störfum sínum, úrskurðir nefndarinnar eru endanlegir gagnvart stjórnvöldum, hvorki ríkisstjórn og Alþingi segja nefndinni fyrir verkum og stjórnvöld geta ekki kært niðurstöðu hennar til dómstóla,“ sagði Birgir.

Brýnt að löggjafinn grípi inn í þessa endaleysu

Hann segir að þetta sé valdamikil sjö manna nefnd og rekstur hennar kosti 273 milljónir á ári.

„Nefndin ákvað að allir þeir sem koma frá Venesúela skuli fá fjögurra ára vernd með sömu réttindi og Íslendingar í velferðarkerfinu. Þetta vita þeir sem kaupa sér flugfar til Íslands frá Venesúela. Þetta er megin ástæða þess að fjölmennasti hópurinn sem sækir um hæli frá Íslandi er frá Venesúela. Á sama tíma veitir ekkert Norðurlandanna umsækjendum frá Venesúela fjögurra ára vernd og umsóknir eru fáar. Útlendingastofnun hefur undanfarin neitað umsækjendum frá Venesúela um vernd hér á landi. Málin bíða nú niðurstöðu kærunefndarinnar.

Staðfesti nefndin niðurstöðurnar mun straumurinn til landsins minnka verulega og staða þeirra sem fyrir eru í landinu breytast. Ekkert er hins vegar að frétta frá kærunefndinni. Hún er búin að vera hugsa málin í sex mánuði. Þeir vinna greinilega á hraða snigilsins á þeim bænum. Á meðan heldur straumurinn frá Venesúela áfram með tilheyrandi álagi fyrir sveitarfélögin og kostnað fyrir skattgreiðendur. Nefndin gæti stytt þennan tíma með því að lesa skýrslu norsku kærunefndarinnar um stöðu mála í Venesúela. Það er brýnt að löggjafinn grípi inn í þessa endaleysu og stokki upp kærunefnd útlendingamála,“ sagði Birgir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert