Kjartan Bjarni settur Landsréttardómari í 6 ár

Kjartan Bjarni Björgvinsson héraðsdómari hefur verið settur dómari við Landsrétt …
Kjartan Bjarni Björgvinsson héraðsdómari hefur verið settur dómari við Landsrétt frá og með 9. október í um sex ár. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Kjartan Bjarni Björgvinsson héraðsdómari hefur verið settur í embætti dómara við Landsrétt frá og með 9. október til og með 28. febrúar 2029. Tekur hann sæti Oddnýjar Mjallar Arnardóttur sem kjörin var dómari við Mannréttindadómstól Evrópu og er í leyfi frá Landsrétti til 2029.

Fjögur sóttu um embættið þegar það var auglýst í júlí, en það voru þau Arn­ald­ur Hjart­ar­son héraðsdóm­ari, Ei­rík­ur Elís Þor­láks­son for­seti laga­deild­ar Há­skól­ans í Reykja­vík og Ragn­heiður Snorra­dótt­ir héraðsdóm­ari auk Kjartans Bjarna.

Í umsögn dómnefndar var Kjartan Bjarni metinn hæfastur umsækjenda til að gegna embættinu.

Kjartan Bjarni Björgvinsson lauk embættisprófi í lögfræði árið 2002 og meistara­­prófi í lögum frá London School of Economics and Political Science 2006. Að loknu embættisprófi starfaði hann sem lögfræðingur hjá umboðsmanni Alþingis og síðan sem aðstoðarmaður umboðsmanns 2006-2009.

Á árunum 2009-2015 var hann aðstoðarmaður dómara við EFTA-dómstólinn. Vorið 2015 var hann skipaður héraðs­dómari og hefur gegnt því embætti síðan með nokkrum hléum. Þannig var hann 2016-2017 formaður rannsóknarnefndar Alþingis sem tók til skoðunar einkavæðingu Búnaðarbanka Íslands. Þá var hann settur umboðsmaður Alþingis um sex mánaða skeið 2020-2021.

Af öðrum störfum má nefna að hann var varaforseti Félagsdóms á árunum 2019-2022 og hefur verið varaformaður úrskurðarnefndar um upplýsingamál frá 2017. Einnig átti hann sæti í stjórn Dómarafélags Íslands 2017-2023, þar af síðustu fjögur árin sem formaður félagsins.

Hann hefur sinnt stundakennslu við lagadeild Háskóla Íslands frá árinu 2003 og við Háskólann á Bifröst 2005-2009, auk þess sem hann var sérfræðingur og síðan dósent við lagadeild Háskólans í Reykjavík 2015-2018. Hann hefur samið kennslurit á sviði stjórnsýsluréttar ásamt tveimur öðrum og ritað fjölda fræðigreina um lögfræðileg efni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert