Gígaröð sem kennd er við Sundhnúk norðan Grindavíkur komst allt í einu í kastljósið í gær eftir mikla skjálftahrinu og jarðskorpuhreyfingar, en talið er að öflugur og nokkuð stór kvikugangur hafi myndast eftir Sundhnúkagígaröðinni og alla leið í gegnum og suðvestur fyrir Grindavík.
Miðað við magn kviku og önnur gögn er talið að um mjög stóran atburð verði að ræða ef til goss kemur. Þorvaldur Þórðarson, prófessor í eldfjalla- og bergfræði við Háskóla Íslands, sagði í samtali við mbl.is nærtækara að horfa til umfangs og stærðar gossins í Holuhrauni árið 2015, frekar en litlu gosanna á Reykjanesskaga síðustu ár.
Þá var einnig vísað til þessarar gígaraðar á upplýsingafundi almannavarna í dag. Sagði Benedikt Halldórsson, frá Veðurstofunni, að samkvæmt gögnum stofnunarinnar væri kvikugangurinn frá Stóra-Skógfelli og suður fyrir Grindavík.
Magnús Tumi Guðmundsson, jarðfræðingur hjá Háskóla Íslands, sagði einnig að ef sprungan myndi opnast gæti hún orðið allt að 8 km löng áður en hún myndi einangra sig í einn eða fáa gíga.
Magnús tók einnig undir áhyggjur Þorvalds um að ákafi í slíku gosi gæti orðið sambærilegur og við gosið í Holuhrauni. Ef til þess kæmi þyrfti að hafa miklar gætur á gasmengun og taka hana alvarlega. Jafnframt að takmarka aðgang fólks að svæðinu meðan slíkt ætti sér stað. Hins vegar væri líklegast að slíkur ákafi í upphafi væri takmarkaður í tímalengd.
Í bókinni Náttúruvá á Íslandi sem Júlíus Sólnes ritstýrði kemur fram að Sundhnúkahraun hafi runnið fyrir um 2.400 árum, en það er um 22 ferkílómetrar að stærð og kom úr níu km langri gígaröð með tveimur nafnkenndum gígum, sem eru Sundhnúkur (sem er syðst í röðinni) og Melhól sem er norðar.
Hraunið nær niður í Grindavík og er vesturbærinn og hafnarsvæðið á þessu hrauni að hluta.
Gylfi Gylfason, sem heldur úti Youtube-rásinni Íslandsrásin, tók meðfylgjandi myndskeið af nyrsta hluta gígaraðarinnar í fyrradag, en hitt efnið í myndskeiðinu er frá því í fyrra.
Þá eru í fréttinni einnig myndir sem ljósmyndarinn Siggi Anton tók af gígaröðinni.