Allt að 6 stiga frost verður norðanlands í nótt

Spákortið á hádegi.
Spákortið á hádegi. Kort/mbl.is

Í dag er spáð austlægri átt, 3-10 metrum á sekúndu, en 10-18 við suðurströndina. Það verður bjart á norðanverðu landinu, en sums staðar lítilsháttar væta sunnantil og á Austfjörðum.

Dálítil rigning verður með köflum í dag, en þurrt að kalla á Norður- og Vesturlandi.

Hiti verður á bilinu 0 til 8 stig að deginum, mildast syðst. Frost verður víða 1 til 6 stig norðanlands í nótt.

Veðurvefur mbl.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert