Nýtt kerfi fyrir Grindvíkinga tekið upp

Björgunarsveitin Þorbjörn hefur þurft að sinna ýmsum verkefnum í Grindavík …
Björgunarsveitin Þorbjörn hefur þurft að sinna ýmsum verkefnum í Grindavík umliðna viku. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Nýtt kerfi verður tekið upp á morgun fyrir þá Grindvíkinga sem vilja komast aftur inn á heimili sín til að bjarga verðmætum. Þetta kemur fram í færslu björgunarsveitarinnar Þorbjarnar á Facebook nú í kvöld. 

Sveitin sendi í kvöld baráttukveðjur til allra Grindvíkinga.

„Það hryggir okkur mjög að enn sé fólk sem ekki hefur komist til síns heima síðan á föstudag og höfum við leitað allra mögulegra leiða til þess að leysa úr því. Á morgun munu almannavarnir setja af stað nýtt kerfi til þess að halda utan um þessar beiðnir svo hægt sé að ná betur til þessa hóps,“ segir í færslunni.

Þó var ekki frekar greint frá hvað muni felast í þessu nýja kerfi.

Björgunarfólk hefur verið við störf í Grindavík myrkranna á milli frá því bærinn var rýmdur fyrir viku síðan.

„Við vildum óska þess að við hefðum eitthvað um skipulagið að segja en það er ekki staðan. Við erum sannfærð um að allir séu að gera sitt besta með öryggi bæjarbúa að leiðarljósi,“ skrifar Þorbjörn, sem segir samt sem áður að það hafi gengið vel að koma fólki inn á svæðið og að sú vinna haldi áfram næstu daga.

Stærsti hluti bæjarins á „rauða svæðinu“

„Því miður er stærsti hluti bæjarins á hættusvæði sem gjarnan er nefnt rauða svæðið,“ segir í færslunni.

„Þetta svæði þykir mjög hættulegt því það eru líkur á að eldgos geti brotist út með litlum fyrirvara. Þess vegna geta aðeins fáir verið á svæðinu í einu svo hægt sé að tæma það með stuttum fyrirvara. Þetta hefur orðið til þess að það tekur mjög langan tíma að koma öllum heim til sín.“

Björgunarsveitarmaður treður sér í gegn um glugga í Grindavík.
Björgunarsveitarmaður treður sér í gegn um glugga í Grindavík. Ljósmynd/Þorbjörn

Þurft að sinna fjölda verkefna

Verkefnin sem björgunarfólk hefur þurft að sinna hafa verið gríðarlega mörg en björgunarsveitin segir að aðalmarkmið sé að halda götum bæjarins opnum auk þess að sinna öðrum verkefnum sem sveitinni hafa verið sett fyrir.

„Þannig hefur björgunarsveitin Þorbjörn aðstoðað HS Veitur við að koma á rafmagni og vinna í heitavatnslögnum, aðstoðað bæjarbúa við að sækja lyf ásamt því að slá inn rafmagnslausum húsum. Við höfum einnig bjargað fjölmörgum köttum og komið þeim til sinna eigenda. Þá höfum við einnig starfað við vegagerð með því að kortleggja allar sprungur og merkja þær. Við brúuðum líka nokkrar sprungur en fengum svo Vegagerðina með okkur í lið að fylla í sprungur svo hægt sé að aka yfir þær. Með þessu náum við að flýta ferðum bæjarbúa um bæinn ásamt því að auka öryggi þeirra sem þar starfa með því að stytta flóttaleiðir,“ segir í færslunni.

Sprungan í Grindavík.
Sprungan í Grindavík. Ljósmynd/Þorbjörn

„Grindvíkingar gefast ekki upp“

„Grindavík stendur enn og við ætlum heim aftur! Þó svo að mikið tjón sé í bænum er ljóst að mikill meirihluti húsa er alveg óskemmdur. Þá er rafmagn á langflestum húsum ásamt hitaveitu þrátt fyrir mikið landsig. Við munum gera allt sem í okkar valdi stendur til þess að koma bænum okkar í fyrra horf!

Grindvíkingar gefast ekki upp.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert