Konan sem lést í banaslysinu á Vesturlandsvegi í síðustu viku hét Jóninna Huld Haraldsdóttir.
Hún var 66 ára og búsett á Hvanneyri.
Jóninna Huld var ein á ferð í bíl sem lenti í hörðum árekstri við annan bíl norðan Akrafjalls. Tveir voru í hinum bílnum og voru þeir fluttir á Landspítalann með þyrlu Landhelgisgæslunnar.