14 Íslendingar fengu fálkaorðu

Guðni Th. Jóhannesson forseti ásamt forsetafrúnni Elizu Reid, Reyni Pétri …
Guðni Th. Jóhannesson forseti ásamt forsetafrúnni Elizu Reid, Reyni Pétri Steinunnarsyni garðyrkjubónda og Sigurði Harðarsyni rafeindavirkjameistara. mbl.is/Óttar

Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands sæmdi 14 Íslendinga heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í dag, líkt og hefð er á nýársdag. 

Í hópi þeirra sem hlutu fálkaorðuna er listafólk, íþróttafólk og breiðfylking fólks sem hefur innt af hendi ýmis störf í almannaþágu.

Eftirfarandi hlutu fálkaorðu:

1. Auður Hildur Hákonardóttir, myndlistarkona og rithöfundur, riddarakross fyrir framlag til myndlistar og störf í þágu kvennabaráttu.

2. Elísabet Gunnarsdóttir knattspyrnuþjálfari, riddarakross fyrir framlag til kvennaknattspyrnu og annarra íþrótta.

3. Dr. Erna Sif Arnardóttir, dósent við Háskólann í Reykjavík og svefnfræðingur, riddarakross fyrir framlag til nýsköpunar og svefnrannsókna.

4. Gylfi Þór Þorsteinsson, teymisstjóri hjá Rauða krossinum á Íslandi, riddarakross fyrir störf í þágu samfélags og mannúðar.

5. Helga Þorbergsdóttir hjúkrunarstjóri á heilsugæslustöðinni í Vík, riddarakross fyrir framlag til heilbrigðisþjónustu og sveitarstjórnar- og félagsstarfa í heimabyggð.

6. Hrafnhildur Gunnarsdóttir kvikmyndagerðarmaður, riddarakross fyrir heimildamynda- og þáttagerð og framlag til vitundarvakningar á sviði jafnréttismála.

7. Jenný Karlsdóttir, handverkskona og kennari, riddarakross fyrir framlag til varðveislu íslenskrar alþýðu- og handverksmenningar.

8. Jón Kristinsson arkitekt, riddarakross fyrir frumkvöðlastarf í vistvænni húsagerðarlist á alþjóðavettvangi.

9. Karel Ingvar Karelsson, fyrrverandi skipstjóri, riddarakross fyrir framlag til sjómennsku ungs fólks og eflingar sjómannastéttarinnar.

10. Knútur Rafn Ármann, framkvæmdastjóri og eigandi Friðheima, riddarakross fyrir frumkvöðlastarf á sviði matvælaframleiðslu, ferðaþjónustu og atvinnuuppbyggingar.

11. Margrét Bóasdóttir, söngkona og söngstjóri, riddarakross fyrir framlag til tónlistarflutnings og kórmenningar.

12. Reynir Pétur Steinunnarson garðyrkjubóndi, riddarakross fyrir afrek og framgöngu í þágu fatlaðra.

13. Sigurður Harðarson rafeindavirkjameistari, riddarakross fyrir störf á sviði fjarskipta- og öryggismála í þágu björgunarsveita, lögreglu og brunavarna.

14. Vilmundur G. Guðnason, forstöðulæknir Hjartaverndar og prófessor, riddarakross fyrir framlag til rannsókna og forvarna á sviði hjarta- og æðasjúkdóma.

mbl.is/Óttar
mbl.is/Óttar
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert