Vill lög á vinnudeilur á opinbera markaðnum

Ef samningsaðilar á opinbera markaðnum eru ekki reiðbúnir að ná samningum á grundvelli samninga á almenna markaðnum verður einfaldlega að setja lög á þá. Þetta segir Brynjar Níelsson, fyrrum þingmaður.

Hann er gestur í nýjasta þætti Spursmála ásamt Ingibjörgu Isaksen, þingflokksformanni Framsóknarflokksins, þar sem staðan í viðræðum á vinnumarkaðnum voru rædd.

Ingibjörg Isaksen og Brynjar Níelsson eru nýjustu gestir Spursmála.
Ingibjörg Isaksen og Brynjar Níelsson eru nýjustu gestir Spursmála. mbl.is/Árni Sæberg

Þegar hann var spurður að því hvernig stjórnvöld gætu brugðist við ef stéttarfélög opinberra starfsmanna neita að ganga að sambærilegum samningum og almenni markaðurinn er langt kominn með að landa, sagði hann þetta:

„Ég er tilbúinn að setja lög á allt svona. Þegar almannahagsmunir eru ríkir., þeir eru mjög ríkir í þessu og það getur ekki einhver bara stöðu sinnar vegnar með sinn verkfallsrétt, sem ég lít á sem verkfallsrétt en menn eru farnir að fara mjög frjálslega með eins og dæmin sanna. Það eru svo ríkir almannahagsmunir að ná niður verðbólgunni. Og ef menn eru komnir á einhverja niðurstöðu um langtímasetninga þá verða auðvitað bara allir að vera með. Ef einhver ætlar ekki að vera með þá verða bara sett lög á hann. Þannig horfi ég á það en ég er því miður ekki á þinginu.“

Ingibjörg kvað ekki eins fast að orði í sínum viðbrögðum við vangaveltum þáttastjórnanda en sagði mikilvægt að allir öxluðu sína ábyrgð.

„Ég neita bara að trúa því að fólk sé ekki tilbúið að leggja sig fram við að ná samningum eins og staðan er í dag. Mér heyrist á umræðunni að fólk sé tilbúið til að taka einhver skref inn og bakka með annað. Þannig að ég held að ef við náum góðum langtímakjarasamningum núna að þá sé það ágætis fyrirheit varðandi næstu samninga, eins og þú segir fyrir opinbera starfsmenn. Og ég trúi ekki öðru en að fólk axli ábyrgð á því og reyni að ná samningum,“ sagði Ingibjörg.

Viðtalið við þau Brynjar og Ingibjörgu má sjá og heyra í heild sinni hér:

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert