Búast má við slæmum akstursskilyrðum og truflunum

Veðurstofa Íslands spáir talsverðri snjókoma á köflum í nótt og …
Veðurstofa Íslands spáir talsverðri snjókoma á köflum í nótt og fyrramálið á suðvestan- og vestanverðu landinu. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segir að það megi búast við versnandi akstursskilyrðum og afmörkuðum samgöngutruflunum í fyrramálið sökum veðurs.

Spáin gerir þó ráð fyrir því að það stytti upp eftir hádegi á morgun.

„Muna að hreinsa snjó vel af ökutækjum áður en lagt er af stað út í umferðina og vera með öll ljós kveikt. Óvitlaust er að leggja fyrr af stað en venjulega til að losna við umferðarteppur og tafir. Og síðast en ekki síst, förum öll varlega.“

Veðurvefur mbl.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert