Hættustigi lýst yfir vegna hættu á heitavatnsskorti

Úlfar Lúðvíksson, lögreglustjóri á Suðurnesjum, við Grindavíkurveg. Hraun rennur yfir …
Úlfar Lúðvíksson, lögreglustjóri á Suðurnesjum, við Grindavíkurveg. Hraun rennur yfir veginn og í átt að heitavatnslögninni að Reykjanesbæ. mbl.is/Kristinn Magnússon

Ríkislögreglustjóri, í samráði við lögreglustjórann á Suðurnesjum, hefur lýst yfir hættustigi almannavarna vegna hættu á heitavatsskorti á Reykjanesskaga. Þetta kemur fram í tilkynningu frá embættinu.

Fram kemur að almannavarnir biðji almnenning um að gefa viðbragðsaðilum svigrúm í þeirri vinnu sem núna fer fram á staðnum.

Bíði með að hefja rafkyndingu

Almannavarnir biðla einnig til húseigenda á Suðurnesjum að bíða með að hefja rafkyndingu í lengstu lög. Einnig eru íbúar og atvinnulíf beðið um að lækka í hitakerfum í húsum og vera ekki að nota heitt vatn til baða í sturtu, baðkörum eða heitum pottum.

Þá er vísað í skilaboð á vef HS Veitna til íbúa á Reykjanesskaga:

„Hraunflæðið rennur nú í átt að stofnlögn sem flytur heitt vatn frá Svartsengi til Fitja í Reykjanesbæ. Fari hraunflæði yfir lögnina er útlit fyrir að sú sviðsmynd raungerist að ekkert heitt vatn frá Svartsengi með þeim afleiðingum að heitavatnslaust verður í Reykjanesbæ, Suðurnesjabæ, Grindavík og Vogum. Eins og hraðinn er á hraunflæðinu núna gæti það gerst á næstu klukkustundum.

Til að bregðast við slíkum atburði hefur verið unnið að lagningu nýrrar heitavatnslagnar í jörðu á þessu svæði. Búið er að leggja um 500 metra langan kafla þar sem ætlunin er að tengja ef gamla lögnin eyðileggst en það getur hinsvegar tekið einhverja daga að koma nýju lögninni í gagnið.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert