Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra heldur upplýsingafund fyrir íbúa Grindavíkur í Laugardalshöllinni klukkan 17 á mánudaginn.
Þetta kemur fram í tilkynningu á vef almannavarna en þar segir að markmið fundarins sé að upplýsa íbúa Grindavíkur um stöðu jarðhræringa og innviða í og við Grindavík. Fram hefur komið að staðan sé ekki góð og því sé mikilvægt fyrir íbúa að fá réttar upplýsingar í máli og myndum.
Dagskrá fundarins sem verður streymt: