Útför Karls Sigurbjörnssonar biskups var gerð frá Hallgrímskirkju í gær.
Séra Sigurður Arnarson jarðsöng en séra Þorvaldur Karl Helgason annaðist ritningarlestur. Organisti var Guðný Einarsdóttir og kórinn Cantoque Ensemble söng. Þorkell Helgi Sigfússon söng einsöng. Hljóðfæraleikarar voru Guðbjartur Hákonarson, Hrafnhildur Marta Guðmundsdóttir, Magnea Árnadóttir, Steinunn Vala Pálsdóttir, Svava Bernharðsdóttir og Jón Hafsteinn Guðmundsson.
Karl Sigurbjörnsson lést 12. febrúar á gjörgæsludeild Landspítalans í Reykjavík, 77 ára að aldri. Hann var kjörinn biskup Íslands árið 1997 og tók við embættinu 1. janúar 1998. Hann gegndi því í 14 ár. Eftir það þjónaði hann um tíma í Dómkirkjuprestakalli.