Mótmæla við þýska og breska sendiráðið

Gengið var til stuðnings Palestínu í dag.
Gengið var til stuðnings Palestínu í dag. mbl.is/Arnþór

Samstöðuganga til stuðnings Palestínu hófst klukkan tvö í dag. Hópur mótmælenda gekk frá Hallgrímskirkju að sendiráðum Bretlands og Þýskalands við Laufásveg. 

Beina athygli að „samsekt Bretlands og Þýskalands“

„Við göngum saman niður að sendiráðum Bretlands og Þýskalands við Laufásveg 31, til að beina mótmælum okkar að samsekt Bretlands og Þýskalands í hernámi á Palestínu og yfirstandandi þjóðarmorði,“ sagði í fréttatilkynningu frá félagin Ísland-Palestína.

Hjálmtýr Heiðdal, formaður félagsins, og Enas Dajani fóru með ávarp á fundinum, sem Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir stýrði.

Samstöðu með Palestínu á öllum Norðurlöndunum gengu einnig í dag. 

mbl.is/Arnþór
mbl.is/Arnþór
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert