Fjögur umferðaróhöpp, íkveikja og skemmdarverk

Nokkur umferðaróhöpp urðu á vakt lögreglunnar.
Nokkur umferðaróhöpp urðu á vakt lögreglunnar. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Tilkynnt var um tvö umferðaróhöpp í hverfi 210 í Garðabæ. Í öðru þeirra voru þrír fluttir á slysadeild til frekari skoðunar eftir minniháttar slys en í hinu urðu engin slys á fólki og fjarlægði Krókur bifreiðina.

Lögreglunni bárust tilkynningar um tvö umferðaróhöpp til viðbótar. Það fyrra varð í Breiðholti og það síðara í Grafarvogi en engin slys urðu á fólki.

Grunur um íkveikju

Lögreglunni barst tilkynning um eld í bifreið í hverfi 203 í Kópavogi og er grunur um íkveikju. Ekki er vitað hver var að verki, að því er segir í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu vegna verkefna frá klukkan 17 í gær til kl. 5 í morgun.

Skemmdarverk voru unnin á Seltjarnarnesi og er gerandinn ókunnur.

Líkamsárás í miðbænum

Jafnframt barst tilkynning um minniháttar líkamsárás og þjófnað í miðbæ Reykjavík. Ekki er vitað um gerandann.

Tveir ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um ölvun við akstur, annar í  hverfi 105 í Reykjavík og hinn í hverfi 220 í Hafnarfirði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert