Eik skoðar samning sinn við Wok On

Eik fasteignafélag, sem á og rekur Smáratorg 1, skoðar nú …
Eik fasteignafélag, sem á og rekur Smáratorg 1, skoðar nú samning sinn við Wok On sem er með veitingastað á Smáratorgi 1. Samsett mynd/mbl.is/Sigurður Bogi/Eggert Jóhannesson

Eik fasteignafélag, sem á og rekur Smáratorg 1, skoðar nú samning sinn við Wok On sem rekur veitingastað í byggingunni.

Þetta segir Garðar Hannes Friðjónsson, forstjóri félagsins, í samtali við mbl.is.

„Við erum að kortleggja stöðuna,“ segir Garðar.

Eins og greint hef­ur verið frá þá sleit Krón­an viðskipta­sam­bandi sínu við Wok On í gær eft­ir um­fangs­mikla lög­regluaðgerð. Sex hafa verið vistaðir í gæsluvarðhald en grun­ur er um man­sal, pen­ingaþvætti, brot­ á at­vinnu­rétt­ind­um út­lend­inga og skipu­lagða brot­a­starf­semi.

Gróðurhúsið leitar leiða til að rifta samningi sínum við Wok On og Mathöll Höfða skoðar einnig samning sinn við Wok On.

Brugðið yfir fréttum

„Manni er óneitanlega brugðið. Við erum með málið til skoðunar og erum að kanna þá möguleika sem eru í stöðunni,“ segir Garðar.

Spurður hvort að félagið hyggist grípa til sömu ráða og Krónan segir hann að félagið sé með samninginn við Wok On til skoðunar.

„Í málum sem þessum leitast félagið við að gæta sinna hagsmuna og mun málið skoðast út frá ákvæðum leigusamnings og lögum í landinu,“ segir Garðar að lokum. 

Veit­inga­stöðum Wok On á höfuðborg­ar­svæðinu og í Hvera­gerði hefur verið lokað. Á meðal þeirr­ar starf­semi sem lög­regl­an stöðvaði síðdeg­is í gær er gisti­húsið Kast­ali Guesthouse.

Starf­semi Kast­al­ans og Wok On er í eigu at­hafna­manns­ins Davíðs Viðars­son­ar. Hann rek­ur einnig Vy-þrif og veit­ingastaði Pho Vietnam.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert