Höfnunin snerist Gyrði í hag

Ingimar Jónsson, forstjóri Pennans, Gyrðir Elíasson og Aðalsteinn Ásberg útgefandi, …
Ingimar Jónsson, forstjóri Pennans, Gyrðir Elíasson og Aðalsteinn Ásberg útgefandi, við nýtt upplag af bók Gyrðis. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Það verður að viðurkennast að þessar viðtökur hafa eiginlega komið okkur í opna skjöldu en þær eru sannarlega ánægjulegar,“ segir Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson, útgefandi í Dimmu. Ekkert lát er á vinsældum nýjustu ljóðabóka Gyrðis Elíassonar, ljóðatvennunnar Dulstirni/Meðan glerið sefur.

Eins og Morgunblaðið hefur fjallað um að undanförnu komu bækurnar út á síðasta ári og slógu í gegn. Þær voru hins vegar ófáanlegar fyrir jólin og alls seldust 1.100 bækur í þeirri atrennu. Penninn/Eymundsson pantaði í kjölfarið 500 eintök og eru þau nú við það að klárast, rétt um mánuði eftir að þau komu í verslanir.

Aðalsteinn Ásberg sá í hvað stefndi og pantaði fljótlega 300 eintök til viðbótar sem eru væntanleg í verslanir nú í vikulokin. Þar með hafa verið prentuð um tvö þúsund eintök af ljóðatvennunni. Fáheyrt er að slíkt upplag hafi verið prentað af íslenskum ljóðabókum og þegar horft er til þess að um ljóðatvennu er að ræða, samtals fjögur þúsund bækur, eru bækur Gyrðis allt í einu komnar í flokk með vinsælum skáldsögum.

Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag. 

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert