Almannavarnanefnd Austurlands hefur, ásamt sveitarfélögunum Múlaþingi og Fjarðabyggð, hafið vinnu sem miðar að því að rýna verkferla í kjölfar snjóflóða sem féllu um síðustu helgi á skíðasvæðum á Austurlandi.
Tveir þrettán ára drengir lentu í snjóflóði við skíðasvæðið í Stafdal við Seyðisfjörð á laugardag.
„Meðal annars verður farið yfir öryggisbúnað, þjálfun starfsmanna, hættumat, áætlanagerð og fleira. Með í þessari vinnu verða fagaðilar eins og Veðurstofa Íslands, svæðisstjórn björgunarsveita á Austurlandi og lögregla,” segir í tilkynningu frá almannavarnanefndinni.
Þar segir að áhersla verði lögð á að ljúka vinnunni sem fyrst.