Rampur númer 1.100 vígður í dag

Það ríkti mikil gleði þegar rampurinn var vígður í dag.
Það ríkti mikil gleði þegar rampurinn var vígður í dag. Ljósmynd/Aðsend

Rampur númer eittþúsund og eitthundrað hjá verkefninu Römpum upp Ísland var vígður í dag.

Þetta segir í tilkynningu frá Römpum upp Ísland.

Rampurinn er við félags- og íþróttamiðstöðina í Vogum og var það Eggert N. Bjarnason, íbúi í Vogum, sem klippti borðann.

Ánægjulegt að fylgjast með verkefninu

Haft er eftir Gunnari Axel Axelssyni bæjarstjóra í Vogum að það hafi verið sérstaklega ánægjulegt að fylgjast með þessum frábæra og metnaðarfulla verkefni.

„Við í Vogum viljum að sjálfsögðu tryggja jafnt aðgengi allra að okkar stofnunum og þeirri þjónustu sem íbúum stendur til boða og tökum fagnandi þeirri hvatningu og stuðningi sem felst í verkefninu Römpum upp Ísland. Vonandi munum við einhvern tíma upplifa þann dag þar sem aðgengi hreyfihamlaðra verður svo sjálfsagður og eðlilegur hlutur að það þurfi ekki átak til og ég held að Römpum upp Ísland hafi tekist að fleyta okkur miklu hraðar og nær því markmiði,“ segir Gunnar.

Eggert N. Bjarnason, íbúi í Vogum, vígði rampinn í dag.
Eggert N. Bjarnason, íbúi í Vogum, vígði rampinn í dag. Ljósmynd/Aðsend

Átakið Römpum upp Ísland stefnir að því að byggja 1.500 rampa í þágu hreyfihamlaða fyrir 11. mars 2025. Var fyrsti rampurinn tekinn í notkun í maí 2021.

Upphaflega var stefnt að því að reisa þúsund rampa, en var sú ákvörðun svo tekin að ganga einu skrefi lengra og reisa eitt þúsund og fimmhundruð rampa.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert