Lögregla hafði í dag afskipti af tveimur mönnum sem voru að stunda fíkniefnaviðskipti á þriðja tímanum eftir hádegi í dag.
Annar þeirra grunaður um vörslu fíkniefna eftir kaupin og hinn um sölu og dreifingu þeirra.
Þetta kemur fram í dagbók lögreglu. Þar kemur einnig fram að tilkynnt hafi verið um þjófnað í verslun í Reykjavík.
Þá þurfti lögreglustöð 2 að sinna tilkynningu um umferðarslys þar sem reiðhjól og bifreið lentu saman.