Kynningarfundur verður haldinn í dag á Reykjavík Natura um stöðu drengja í íslenska menntakerfinu.
Fundurinn, sem er haldinn á vegum mennta- og barnamálaráðuneytisins og háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytisins, stendur yfir frá klukkan 13.30 til 14.15.
Beint streymi frá fundinum:
„Lakari frammistaða og aukið brottfall drengja úr námi hafa verið í umræðunni á undanförnum árum og er þróunin neikvæð. Á fundinum verður kynnt viðamikil úttekt á stöðunni út frá nýjum og fyrirliggjandi gögnum þar sem rýnt er í áhrifaþætti og sóknarfæri,” segir í tilkynningu.
Dagskráin:
13.30 Ávarp – Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra
13.35 Staða drengja í menntakerfinu – Tryggvi Hjaltason, skýrsluhöfundur
14.00 Ávarp – Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra
14.05 Ný stofnun – hlutverk og framtíðarsýn – Þórdís Jóna Sigurðardóttir, forstjóri Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu
14.10 Lokaorð