Hraunið flæðir áfram í norðurátt

Eldgos við Sundhnúkagígaröðina.
Eldgos við Sundhnúkagígaröðina. mbl.is/Hörður Kristleifsson

Enn er stöðug virkni í einum gíg í eldgosinu við Sundhnúkagíga en engin jarðskjálftavirkni hefur verið á svæðinu í nótt. 

Hraun flæðir enn hægt og rólega í norðurátt meðfram Sýlingarfelli þar sem það „bunkast upp”, að sögn Bjarka Kaldalóns Friis, náttúruvársérfræðings á Veðurstofu Íslands.

Spáð er norðan- og norðvestanátt í dag og berst gasmengun því til suðurs og suðausturs. Hennar gæti orðið vart í Grindavík.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert