Kjartan Bjarni Björgvinsson, settur dómari við Landsrétt, hefur verið metinn hæfastur til að hljóta skipun í embætti landsréttardómara.
Frá þessu er greint á vef Stjórnarráðsins en dómnefnd um hæfni umsækjenda um dómaraembætti hefur skilað niðurstöðu sinni.
Kjartan lauk embættisprófi í lögfræði árið 2002 frá Háskóla íslands og meistaraprófi í Evrópurétti og sjórnskipunarrétti frá London School of Economics and Political Science.
Aðrir umsækjendur um embættið voru Arnaldur Hjartarson héraðsdómari og Eiríkur Elís Þorláksson, dósent við lagadeild Háskólans í Reykjavík.
Kjartan hefur starfað sem lögfræðingur hjá umboðsmanni Alþingis og sem aðstoðarmaður umboðsmanns 2006-2009. Á árunum 2009-2015 var hann aðstoðarmaður dómara við EFTA-dómstólinn.
Vorið 2015 var hann skipaður héraðsdómari og hefur gegnt því embætti síðan með nokkrum hléum.
Þá var hann formaður rannsóknarnefndar Alþingis sem tók til skoðunar einkavæðingu Búnaðarbanka Íslands. Einnig var hann settur umboðsmaður Alþingis um sex mánaða skeið 2020-2021.
Kjartan var varaforseti Félagsdóms á árunum 2019-2022 og hefur verið varaformaður úrskurðarnefndar um upplýsingamál frá 2017. Einnig átti hann sæti í stjórn Dómarafélags Íslands 2017-2023 þar af síðustu fjögur árin sem formaður félagsins.
Hann hefur sinnt stundakennslu við lagadeild Háskóla Íslands frá árinu 2003 og við Háskólann á Bifröst 2005-2009, auk þess sem hann var sérfræðingur og síðan dósent við lagadeild Háskólans í Reykjavík 2015-2018.
Kjartan er settur dómari frá október 2023 til febrúar 2029 en verði hann skipaður er það ótímabundið.