Jón Elfar Hjörleifsson ,bóndi á Hrafnagili í Eyjafirði, er feginn að hafa lokið við að bera áburð á tún áður en óveðrið sem nú gengur yfir landið brast á og gerir ráð fyrir að bleytan muni skila sér í góðri uppskeru. Hann hefur meiri áhyggjur af kornræktinni.
Á bænum eru meðal annars hross, kýr og kindur.
Í Eyjafirði, líkt og á stærstum hluta landsins, hafa ríkt veðurviðvaranir síðan í byrjun vikunnar en aðspurður hvernig veðrið blasir við honum segir Jón:
„Þetta er náttúrulega mjög óvenjulegt á þessum tíma, við gerðum bara skjólveggi fyrir hross og kindur sem voru úti. Við látum þær bara vera í skjóli bæði við skóg og svo staflaði ég hálmrúllum út og það fór allt vel.“
Jón kveðst feginn að hafa lokið við að bera á túnin áður en óveðrið brast á og telur að bleytan komi til með að skila sér í góðri uppskeru:
„Ef það hlýnar núna verður svaka uppskera held ég, ég held að það sé ekki nokkur spurning. Við höfum lent í þessu áður, þá var ég búinn að bera á fyrir snjókomu og það hefur aldrei verið meira gras en þá.“
Jón er hins vegar ekki jafn bjartsýnn á kornuppskeru sumarsins: „Það þarf að hlýna allhressilega í sumar ef kornið á að heppnast. Við erum nýbúin að setja í 40 hektara og ef það verður svona kalt þá líst mér ekki nógu vel á það.“
Jón segir veðrið hafa lítil áhrif á hrossarækt hjá sér en þær merar sem höfðu kastað hafi einfaldlega staðið í skjóli með rúllu hjá sér og hafi það fínt.
„Í gær rofaði aðeins til og þá voru þau farin að hlaupa og leika sér og merarnar farnar að dreifa sér um túnin,“ segir Jón um hrossin.
Hann segist sjálfur eiga nóg af heyi en er ekki viss um að svo sé alls staðar:
„Ég hugsa frekar til bændanna í Svarfaðardal og í kring sem eru kannski heytæpir og mikið kal og allt á kafi í snjó núna. Ég held að allir ættu að reyna að eiga sem mest bara til að geta látið þá hafa ef illa fer.“
Jón segist ekki muna eftir öðru eins veðri í júní en rifjar upp Landsmót hestamanna sem haldið var á Melgerðismelum 1998: „Þegar landsmótið var á Melgerðismelum, það var nú held ég í byrjun júlí, þá vöknuðu allir í snjókomu einn daginn. En það var ekkert í líkingu við þetta, svona langur tími.“