Hópi norrænna fangelsismálastjóra sem heimsótti Bessastaði í gær þótti mikið til sagnfræðiþekkingar forsetans koma.
Um þessar mundir funda norrænir fangelsismálastjórar á Íslandi um áskoranir sem blasa við í fangelsum á Norðurlöndum vegna skipulagðrar glæpastarfsemi.
Í gær sótti hópurinn Bessastaði heim og hitti fyrir Guðna Th. Jóhannesson forseta.
„Það var alveg stórkostlegt og þeim þótti veruleg upplifun að hitta forseta þessa lands,“ segir Páll Winkel fangelsismálastjóri um heimsóknina.
Páll bætir við að norrænu fangelsismálastjórunum hafi þótt mikið koma til sagnfræðiþekkingar Guðna, „sem ekki bara var verulega fróður um sögu íslenskrar þjóðar eins og gera má ráð fyrir heldur hafði hann jafnframt djúpstæða þekkingu á þróun refsivörslukerfisins á Íslandi frá upphafi og til dagsins í dag“.
„Þetta þótti þeim ákaflega merkilegt og okkur öllum,” segir Páll.
Hann segir mikinn sóma af þessari móttöku og segir hópinn mjög þakklátan, „fyrir svona góðar móttökur vel lesins þjóðhöfðingja“.