Birgir D. Sveinsson, kennari og fyrrverandi stjórnandi Skólahljómsveitar Mosfellsbæjar og fyrrverandi skólastjóri Varmárskóla, var í dag útnefndur heiðursborgari Mosfellsbæjar við hátíðlega athöfn við Varmárlaug.
Þetta kemur fram í tilkynningu bæjarskrifstofu Mosfellsbæjar.
Birgir er heiðraður fyrir hans mikla framlag til tónlistar- og menningarlífs sem og uppeldismála í Mosfellsbæ.
Árið 2005 var Birgir sæmdur stórriddarakrossi Hinnar íslensku fálkaorðu fyrir tónlistarkennslu við hátíðlega athöfn á Bessastöðum.
Birgir fæddist 5. apríl 1939 í Neskaupstað. Hann lauk landsprófi í Vestmannaeyjum og kennaraprófi árið 1960. Samhliða námi stundaði Birgir tónlistarnám og lék á blásturhljóðfæri. Birgir fluttist til Mosfellsbæjar að loknu kennaraprófi og var kennari við Varmárskóla árin 1960-1977. Hann var yfirkennari 1977-1983 og skólastjóri skólans 1983-2000.
Birgir var fenginn til að kenna drengjum á blásturshljóðfæri haustið 1963 og úr varð drengjahljómsveitin, síðar Skólahljómsveit Mosfellsbæjar, sem spilaði fyrst opinberlega við vígslu sundlaugarinnar að Varmá, þann 17. júní 1964. Skólahljómsveitin hefur starfað óslitið í 60 ár.
Birgir stóð að því að efna til tónlistarkennslu í barnaskólanum sama haust og út frá því starfi var tónlistarskóli í Mosfellssveit stofnaður haustið 1966.
Birgir var stjórnandi Skólahljómsveitar Mosfellsbæjar í 40 ár eða fram til ársins 2004. Hljómsveitin hefur þjónað tónlistarlegu uppeldi fjölda barna og ungmenna í Mosfellsbæ en jafnframt verið bæjarhljómsveit og komið fram við hin ýmsu hátíðlegu tækifæri.
Þúsundir barna og ungmenna hafa notið leiðsagnar Birgis, sem kennara og tónlistarmanns og umsögn fyrrverandi nemenda er samhljóma um þau góðu áhrif sem Birgir hefur haft á þeirra þroskabraut. Birgir er sagður hafa verið einstakur kennari, þolinmóður, umhyggjusamur og hafa veitt sérhverju barni athygli sína.
Birgir var formaður Samtaka íslenskra skólahljómsveita í 20 ár en samtökin voru stofnuð í Mosfellsbæ. Hann var útnefndur heiðursfélagi samtakanna árið 2019. Birgir fékk viðurkenningu frá bæjarstjórn Mosfellsbæjar fyrir frábær störf árið 1994.