Rúmur milljarður til uppbyggingar öldrunarþjónustu

Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra.
Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Heilbrigðisráðherra hefur úthlutað rúmum einum milljarði króna úr Framkvæmdasjóði aldraðra. Úthlutunin er sú hæsta úr sjóðnum til þessa.

Hlutverk sjóðsins er að stuðla að uppbyggingu og efla öldrunarþjónustu um land allt.

Veitt voru framlög til 73 verkefna á hjúkrunarheimilum víðsvegar um landið, að því er segir í tilkynningu.

„Við úthlutun lagði stjórn Framkvæmdasjóðsins áherslu á verkefni sem stuðla að bættum aðbúnaði og auknu öryggi íbúa. Þar má nefna breytingu tvíbýla í einbýli, endurbætur á einkarýmum og sameiginlegum rýmum íbúa, bætta aðstöðu til endurhæfingar og þjálfunar, greiðara aðgengi innanhúss og utan og ýmis fleiri öryggismál auk almennra viðhaldsverkefna,” segir í tilkynningunni.

Af einstökum verkefnum sem hlutu framlag úr sjóðnum í ár má nefna 91 milljón króna til nýbyggingar við Hjúkrunarheimilið Skjólgarð á Höfn þar sem verður framleiðslueldhús og fjölnotasalur.

Dvalarheimilið Naust í Langanesbyggð fær um 106 milljónir króna til viðbyggingar við heimilið og endurbóta innan- og utanhúss. Einnig fær hjúkrunarheimilið Skjól í Reykjavík um 140 milljónir króna til endurbóta á baðherbergjum, endurnýjunar á lyftu og vegna viðamikilla framkvæmda á loftum og lýsingu.

Hjúkrunarheimilin Grund og Eir fá bæði framlög til að breyta tvíbýlum í einbýli, auk framlaga til ýmissa fleiri viðhalds- og endurbótaverkefna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert