Víða var höfð viðkoma og glatt var á hjalla í opinberri heimsókn Guðna Th. Jóhannessonar forseta Íslands í Árneshrepp á Ströndum nú um helgina. Eins og sagði frá hér á mbl.is í gær var forsetinn sæmdur gullerki Ferðafélags Íslands þegar hann fór með hópi frá félaginu í fjallgöngu í gær. Margt fleira var þó gert.
Eftir fjallgöngu í gær fór forsetinn í sjósund í Norðurfirði og á eftir brá hópurinn sér svo í Krossneslaug til þess að fá yl í kroppinn. Slíkt var upptaktur söngskemmtunar í gömlu fjárhúsi á bænum Valgeirsstöðum, sem nú er nýtt sem vinsæll samkomustaður. Þangað var Helgi Björnsson söngvari mætti með vöskum hljóðfæraleikurum sem héldu uppi góðri stemningu. Í lokin kom svo forsetinn fram með Helga og félögum og tók með þeim lagið; Vertu þú sjálfur.
Í morgun, sunnudag, í lok dagskrár, kom svo forsetinn við í Trékyllisvík þar sem hann skoðaði minja- og handverkshúsið Kört.
Ferðin á Strandir nú var síðasta opinbera heimsókn Guðna Th. Jóhannessonar, sem lætur af embætti forseta Íslands nú í lok júlímánaðar.