Helgi Hafnar Gestsson, oftast kenndur við knæpuna Prikið, lét sig ekki vanta á Austurvöll í dag þegar Halla Tómasdóttir tók formlega við embætti forseta Íslands við hátíðlega athöfn.
Á þriðja hundrað manns mættu í miðbæinn til þess að fylgjast með innsetningarathöfninni sem var haldin í Dómkirkjunni og Alþingishúsinu.
Hópurinn fylgdist með á skjá fyrir utan Alþingishúsið. Og eðlilega mátti þar einnig finna eitt af lukkudýrum miðborgarinnar, Helga, sem hefur verið fastakúnni á Prikinu við Bankastræti svo áratugum skiptir.
„Ég vildi svona rétt vera viðstaddur,“ segir Helgi í samtali við blaðamenn mbl.is en hann er búsettur í miðborginni og taldi því um að gera að kíkja á innsetningarathöfnina. „Enda hátíðarstund,“ bætir hann við.
Og hvernig líst þér á nýjan forseta?
„Bara vel held ég,“ svarar Helgi, sem efast ekki um að Halla standi sig vel í embættinu.
„Já, ég er alveg viss um það.“