Guðmundur P. Davíðsson, framkvæmdastjóri Ægis sjávarfangs, segir að snögglega hafi verið brugðist við vinnuslysinu sem varð í verksmiðju fyrirtækisins í Grindavík í morgun.
„Það voru komnir sjúkrabílar á svæðið innan nokkurra mínútna, og slökkviliðið og fleiri viðbragðsaðilar. Hinn slasaði er í aðgerð á spítalanum í Fossvogi en viðkomandi slasaðist á hönd,“ segir Guðmundur í samtali við mbl.is.
Hann kveðst ekki hafa upplýsingar um aðdraganda slysins eða áverkana.
Slysið sé þó alvarlegt enda skaddaðist hendi starfsmannsins í vinnuvél. Viðkomandi hefur unnið hjá fyrirtækinu í nokkur ár.
Lögreglan og Vinnueftirlitið vinna nú að rannsókn slyssins.