Mótmæla að „innfluttum koltvísýring“ sé dælt í jörðina

Arndís Kjartansdóttir og Ragnar Þór Reynisson afhentu Rósu Guðbjartsdóttur, bæjarstjóra …
Arndís Kjartansdóttir og Ragnar Þór Reynisson afhentu Rósu Guðbjartsdóttur, bæjarstjóra Hafnarfjarðar, undirskriftalistann fyrr í dag. Ljósmynd/Aðsend

Íbúar í Hafnarfirði afhentu Rósu Guðbjartsdóttur, bæjarstjóra Hafnarfjarðar undirskriftalista í dag þar sem 6.090 manns skoruðu á bæjarstjórn Hafnarfjarðarbæjar að falla frá áformum um Coda Terminal verkefnið ellegar setja það í íbúakosningu.

Coda Terminal er verkefni á vegum fyrirtækisins Carbfix.

„Mark­miðið er að binda ár­lega um þrjár millj­ón­ir tonna af kolt­ví­sýr­ingi í jörðu við Straums­vík, á var­an­leg­an og ör­ugg­an hátt, í þágu bar­átt­unn­ar gegn lofts­lags­vánni,“ sagði Ólaf­ur El­ín­ar­son, sam­skipta­stjóri Car­bfix, um verk­efnið í samtali við mbl.is í maí.

mbl.is greindi svo frá í júní að Hafnfirðingar hefðu margir áhyggjur af þessu umfangsmikla loftslagsverkefni fyrirtækisins þar sem fyrirtækið hygðist koma upp tíu borteig­um ná­lægt íbúa­byggð í Hafnar­f­irði svo hægt sé að dæla inn­flutt­um kolt­ví­sýr­ing niður í jörðina.

Mikið um óvissuþætti

Í fréttatilkynningu sem mbl.is barst í kvöld vegna afhendingarinnar segir að þetta risastóra verkefni eigi sér engar hliðstæður á Íslandi, né í heiminum öllum, og mikið sé um óvissuþætti sem tengjast verkefninu vegna áhrifa þess á umhverfi og íbúa bæjarins.

„Fyrirhugað er að dæla niður og binda í berg í mikilli nálægð við íbúðarbyggð við Vellina í Hafnarfirði, 3 milljónir tonna á ári af innfluttu koldíoxíði frá verksmiðjum í Evrópu. Íbúar hvetja bæjarstjórn Hafnarfjarðar til að virða íbúalýðræðið og setja verkefnið í heild sinni í íbúakosningu,“ segir enn fremur í tilkynningunni sem rituð er, fyrir hönd mótmælahópsins, af þeim Ragnari Þór Reynissyni og Arndísi Kjartansdóttur.

Ábyrgðarmenn undirskriftasöfnunarinnar eru þau Ragnar Þór og Arndís.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka