Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti veikan mann á Ólafsvík og flutti hann á Landspítalann í Fossvogi í kvöld.
Þetta segir Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, í samtali við mbl.is.
Í dag sótti þyrla Landhelgisgæslunnar einnig veikan farþega í skemmtiferðaskipi. Var skipið um 150 sjómílum frá Garðskagavita.
Ásgeir segir að stuttu eftir að þyrlusveitin lauk fyrra útkallinu barst síðara útkallið frá Ólafsvík.