Segir Play niðurlægja konur

Drífa Snædal, talsmaður Stígamóta og Nadine Guðrún Yag­hi, for­stöðumaður sam­skipta …
Drífa Snædal, talsmaður Stígamóta og Nadine Guðrún Yag­hi, for­stöðumaður sam­skipta og markaðssviðs Play. Samsett mynd/Eggert Jóhannesson/Eyþór Árnason

Drífa Snædal, talsmaður Stígamóta og fyrrverandi forseti ASÍ, segir auglýsingaherferð flugfélagsins Play niðurlægja konur og að auglýsingin leiði til þess að ógna öryggi kvenna: 

„Konur smættaðar niður í líkama, án höfuðs, sýnt á kynferðislegan hátt. Hlutgerving er afmennskun, afmennskun er niðurlæging og niðurlæging er upptaktur að ofbeldi. Afmennskun kvenna ógnar öryggi þeirra,“ segir Drífa í færslu á Facebook-síðu sinni. 

Þá bætir hún við að hliðstæð auglýsing með karllíkama bæti ekki stöðuna.

Spyr hvort Play ætli sér að slá met

Hún segir félagið brjóta á reglum vinnumarkaðarins og að það greiði konum undir lágmarkslaunum. 

„Er Play að reyna að slá met í jafnréttisbakslagi?“ spyr hún að lokum. 

Nadine Guðrún Yag­hi, for­stöðumaður sam­skipta og markaðssviðs flug­fé­lags­ins, sagði í samtali við mbl.is að flugfélagið hafi alveg vitað hvað það væri að gera með auglýsingaherferðinni. 

Play og ASÍ ítrekað eldað grátt silfur

Tekið skal fram að Drífa og ASÍ hafa ítrekað gagnrýnt Play, og talsmenn flugfélagsins ítrekað gagnrýnt ASÍ og Drífu á móti.

Birgir Jónsson, fyrrverandi forstjóri Play, sagði til að mynda á sínum tíma fjarstæðukenndar þær fullyrðingar Drífu um að flugfélagið myndi borga laun sem væru undir lágmarkslaunum.

Þá sagði Finn­björn A. Her­manns­son, for­seti ASÍ, að hátt­erni Play í tengsl­um við kjara­samn­inga­gerð hefði verið „svart­ur blett­ur á sögu kjara­samn­inga­gerðar á Íslandi.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka