Sóttu slasaðan smala

Smalinn slasaðist á fæti.
Smalinn slasaðist á fæti. Ljósmynd/Landsbjörg

Björgunarsveitir í Borgarfirði voru kallaðar út rétt fyrir klukkan eitt í dag vegna smala sem hafði hrasað við smalamennsku í Skorradal, að því er segir í tilkynningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg.

Björgunarsveitarfólk komst að smalanum, sem var slasaður á fæti, á fjórhjólum. Að sögn Landsbjargar er svæðið afar erfitt yfirferðar.

„Smalanum var komið fyrir á hjóli björgunarfólks, sem flutti hann niður að sjúkrabíl til aðhlynningar,“ segir í tilkynningu.

Þar segir að mikið hafi verið af fólki á fjalli að eltast við fé víðast hvar í Borgarbyggð í dag.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka