Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk tilkynningu um grunsamlegar mannaferðir í Vesturbænum í dag. Lögreglumenn voru sendir á vettvang en talið er að einhver hafi verið að reyna að komast inn í bifreiðar.
Þá var múrsteini kastað inn um glugga í Reykjavík en lögregla fékk tilkynningu um rúðubrotið.
Þetta er meðal þess sem fram kemur í dagbók lögreglu vegna verkefna hennar frá því í morgun og til síðdegis í dag.
Þá fékk lögregla tilkynningu um hugsanlegt innbrot í íbúð í fjölbýlishúsi, þjófnað í matvöruverslun og vinnuslys.
Tilkynning barst einnig um mann sem reyndi að borga með stolnu greiðslukorti. Kortið var gert upptækt en þegar lögregla kom á staðinn var maðurinn á bak og burt.
Tveir voru þá stöðvaðir vegna aksturs undir áhrifum áfengis en báðir höfðu þeir einnig verið sviptir ökuréttindum og aðrir tveir undir áhrifum fíkniefna.