Í kvöld frá kl. 18 og til miðnættis verður Reykjanesbraut lokuð í átt til Hafnarfjarðar vegna fræsinga á frárein og aðrein milli Vífilstaðavegar og Kauptúns.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu vekur athygli á þessu.
Tekið er fram að hjáleið sé um Vífilsstaðaveg og Elliðavatnsveg (Flóttamannaleið).
Einnig sé frárein að álverinu í Straumsvík lokuð fyrir umferð úr vesturátt. Hjáleið þar verður um Krýsuvíkurvegamót.