Jökulhlaup sem hefur staðið yfir í Skálm undanfarna sólarhringa er í rénun.
Rafleiðni og vatnshæð í ánni fór hækkandi frá því á laugardag þar til í gær þegar mælingar byrjuðu að lækka aftur, að því er Veðurstofa Íslands greinir frá.
„Hækkuð rafleiðni er merki um jarðhitavatn í ánni. Jarðhitavatnið kemur undan Mýrdalsjökli. Síðan síðdegis í gær hefur rafleiðnin nálgast aftur eðlileg gildi og er þetta hlaup því í rénun,“ segir í tilkynningu.
Jafnframt segir, að í lok júlí á þessu ári hafi orðið umtalsvert jökulhlaup í Skálm og áin hafi flætt yfir þjóðveg 1 á kafla.
„Í því hlaupi mældist talsverður hlaupórói á jarðskjálftamælum í kringum Mýrdalsjökul en svipaður hlaupórói hefur ekki mælst síðustu daga. Þetta er annar minni atburðurinn sem kemur í kjölfarið á því hlaupi, en annað lítið hlaup varð í ánni í kringum 10. ágúst.“
Þá er tekið fram að náttúruvárvakt Veðurstofunnar haldi áfram að vakta hlaupið en beinir því til ferðafólks á svæðinu að sýna aðgát við upptök árinnar og nærri árfarveginum þar sem enn gæti verið gasmengun á svæðinu.