Fundu hnúajárn, eggvopn og skotfæri við húsleit

Við leit fundust m.a. eggvopn, hnúajárn og skotfæri. Mynd úr …
Við leit fundust m.a. eggvopn, hnúajárn og skotfæri. Mynd úr safni. mbl.is/Árni Sæberg

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fann vopn við húsleit sem embættið fór í síðdegis í gær. Við leit fundust m.a. eggvopn, rafvarnarvopn, skotfæri og hnúajárn.

Þetta kemur fram í dagbók lögreglu. Þar segir jafnframt að málið hafi verið afgreitt með skýrslutöku og afsali.

Maður og kona voru handtekin vegna rannsóknar á heimilisofbeldi. Voru þau bæði vistuð í fangageymslu eftir aðhlynningu á bráðamóttöku.

Kona var flutt á bráðamóttöku eftir rafskútuslys.

Þá hafði lögregla afskipti af nokkrum ökumönnum grunuðum um akstur undir áhrifum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka