„Ég hef ætlað mér að koma til Íslands í langan tíma þannig að ég er ánægður að mér tókst það loksins og ég hef notið mín frábærlega hérna. Þakkir til allra sem hafa tekið á móti mér,“ sagði bresk-indverski rithöfundurinn Salman Rushdie eftir að hafa tekið á móti alþjóðlegum bókmenntaverðlaunum Halldórs Laxness í Háskólabíói í dag.
Var þetta í fjórða skipti sem verðlaunin eru veitt og haldin var hátíðleg athöfn sem hófst klukkan 17.30.
Bjarni Benediktsson afhenti Rushdie verðlaunin, sem eru peningaverðlaun að upphæð 15.000 evrur með verðlaunapeningi að auki.
Næst tóku við umræður þar sem Rushdie settist niður með Höllu Oddný Magnúsdóttir og Halldóri Guðmundssyni.
Þar fór Rushdie um víðan völl og ræddi meðal annars að draumurinn um að verða rithöfundur hafi fylgt honum síðan hann varð barn, aldrei hafi neitt annað komið til greina þó vissulega hafi leiklistaráhugi kviknað á unglinsárum.
Einnig ræddi Rushdie árás sem hann varð fyrir í ágúst 2022 þar sem hann var stunginn margsinnis er hann var að undirbúa sig fyrir fyrirlestur í New York. Missti hann t.a.m. sjón á öðru auga sínu eftir árásina.
Talaði Rushdie um að bataferlið hefði verið langt og hann hafi þá ekki verið viss um hvort hann myndi skrifa um atvikið. Það gerði hann hins vegar og út kom bókin Knife sem ber undirtitilinn „Meditations After an Attempted Murder.“