Jörð skalf rétt norðan við Hofsós í Brekknafjalli um kl. 18.11 í kvöld. Skjálftinn mældist 3,1 að stærð og varð hans vart í byggð.
Samkvæmt tilkynningu sem birtist á vef náttúruvárvaktar Veðurstofu Íslands hafa engir eftirskjálftar orðið í kjölfar skjálftans.
Þá segir einnig að skjálftavirkni á Tröllaskaga sé nokkuð algeng, en þó mælast skjálftar á svæðinu sjaldan á vesturhluta skagans. Skjálfti af sambærilegri stærð mældist síðast norðar á Tröllaskaga í Flókadal í apríl í fyrra.