Fyrr í vikunni voru tveir úrskurðaðir í vikulangt gæsluvarðahald að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á innflutningi fíkniefna.
Í tilkynningu frá lögreglunni segir að lagt hafi verið hald á eitt kíló af kókaíni, sem kom hingað til lands með póstsendingu.
„Rannsókn málsins hefur miðað vel, en öðrum hinna handteknu var sleppt úr haldi lögreglu fyrr í dag,“ segir jafnframt í tilkynningunni.