Máttur einkunnakerfis Google og sambærilegra vefsíðna á borð við TripAdvisor er sjáanlegur fyrir utan veitingastaðinn Gráa köttinn þessa dagana. Svo vinsæll er hann orðinn að gestir láta sig ekki muna um að bíða í röð til þess að komast í morgunmat.
Ástandið er svipað á fleiri stöðum í Reykjavík.
Ásmundur Helgason, annar eigenda Gráa kattarins, segir biðraðir hafi myndast undanfarin sumur.
„Við fórum að ná okkur á strik eftir covid og að sumri til 2022 sáum við þetta byrja, að fólk var tilbúið að bíða,“ segir Ásmundur.
Grái kötturinn er með 31 sæti og á sumum tímum dags eru fleiri sem vilja komast að en pláss er fyrir.
„Við erum bara með góða dóma á Google og það er ástæðan fyrir því að fólk sættir sig við þetta,“ segir Ásmundur.
Hann segir að undanfarin ár hafi rekstur gengið vel frá júní og fram í október en honum hafi hins vegar ekkert litist á blikuna í vor.
„Við vorum orðin svolítið svartsýn í vor. Í maí var þetta orðið svolítið þungt hjá okkur en svo skall ferðamannastraumurinn á og þetta fór í gang hjá okkur. Við vorum farin að halda að sumarið myndi ekkert byrja eins og talað var um í ferðaþjónustunni, en svo kom þetta. Við erum reyndar svo heppin að vera einnig með góðan kúnnahóp Íslendinga,“ segir Ásmundur.
Réttirnir á matseðlinum kosta á bilinu 2.000-4.000 krónur að sögn Ásmundar.
Ásmundur rekur staðinn ásamt eiginkonu sinni, Elínu Guðrúnu Ragnarsdóttur. Grái kötturinn lenti í vandræðum árið 2019 í tengslum við framkvæmdir Reykjavíkurborgar á Hverfisgötu sem áttu að taka þrjá mánuði en enduðu í því að vera nærri sex mánuðir.
Þau hjónin fóru í mál við borgina til að freista þess að fá tafabætur vegna framkvæmdanna. Það mál tapaðist hins vegar.
„Við erum ekki enn búin að fyrirgefa þeim það,“ segir Ásmundur í gamansömum tón.
Fleiri staðir njóta greinilega vinsælda í einkunnagjöf á netinu. Þannig átti blaðamaður leið hjá pylsustaðnum Bæjarins bestu um helgina. Röðin fyrir utan aðra veitingastaði í bænum bliknar í samanburði við þá sem þar eru.
Við grófa talningu mátti sjá að þar voru hátt 100 manns í biðröð eftir pylsu. Spurning er hvort áhrifa Bill Clinton, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, sem gæddi sér á pylsu í pylsuvagninum árið 2004, gæti enn.
Pylsuáhugi Clinton hafði í það minnsta þau áhrif að tímaritið Forbes sá ástæðu til að fjalla um málið árið 2014.