24 Danir fengu fálkaorðuna

Troels Lund varnarmálaráðherra ásamt Önnu, konu sinni.
Troels Lund varnarmálaráðherra ásamt Önnu, konu sinni. Ritzau Scanpix/Bo Amstrup.

Halla Tómasdóttir forseti veitti 24 dönskum embættismönnum fálkaorðuna í ríkisheimsókn sinni í vikunni. Hefð er fyrir orðuveitingum við tilefni sem þessi.

Stórkross fálkaorðunnar fengu þau Barbara Bober Bertelsen, ráðuneytisstjóri forsætisráðuneytis og ritari ríkisráðs, Christian Schønau, hirðstjóri og orðuritari, Erik Vilstrup Lorenzen, sendiherra Dana á Íslandi, Søren Gade, forseti danska þingsins, og Troels Lund Poulsen varnarmálaráðherra.

Stórriddarastjörnu fengu Anders Friis siðameistari, Anne Tønnes, lögreglustjóri Kaupmannahafnar, Jens Ole Rossen Jørgensen, ofursti og yfirmaður aðstoðarforingjaráðs drottningar, og Jeppe Tranholm-Mikkelsen, ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins og sendiherra.

Stórriddarakross fengu Anne Berg Mansfield-Giese, forstöðumaður heiðursmerkjastofu, Dan Folke Pedersen, fjármálastjóri hirðarinnar, Henriette Ellermann-Kingombe, einkaritari drottningar, Jørn Christensen, yfirmaður lífvarðasveitar og ofursti, Lene Balleby samskiptastjóri, Morten Roland Hansen, einkaritari konungs, Nathalie Feinberg, prótókollstjóri utanríkisráðuneytis og sendiherra, og Pernille Flarup, starfsmanna- og rekstrarstjóri.

Riddarakross fengu Anita Halbye kammerdama, Chris Møller Frandsen, yfirmaður heiðursfylgdar lífvarða, Peter Arnold Busk kammerherra, Philip Bernhard Kornblit, liðsforingi og vaktstjóri í Amalíuborg, Søren P. Østergaard aðstoðarforingi, Søren Rønløv Nielsen, hljómsveitarstjóri í lúðrasveit konunglegu lífvarðarsveitarinnar, og Søren Thomas de Seréne d’Acqueria Jensen, liðsforingi og yfirmaður varðasveitar konungs.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert