Komugjald vegna brjóstaskimana lækkað verulega

Breytingarnar voru kynntar á blaðamannafundi í morgun.
Breytingarnar voru kynntar á blaðamannafundi í morgun. mbl.is/Karítas

Komugjald fyrir brjóstaskimun mun lækka úr rúmlega 6.000 krónum í 500 krónur þann 14. október. 

Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur undirritað reglugerð þess efnis og voru breytingarnar kynntar á blaðamannafundi í Brjóstamiðstöð Landspítalans við Eiríksgötu í morgun. Um er að ræða lið í heildarendurskoðun á greiðsluþátttöku.

Lækkun komugjalds er talið mikilvægt skref í að auka þátttöku í brjóstaskimun, sem hefur ekki verið nógu góð síðustu ár, en viðunandi mæting er skilyrði fyrir árangri. 

Kostnaður verið hindrun

Yngri konur, konur af landsbyggðinni og konur af erlendum uppruna mæta síður í skimun.

Fram kom á fundinum að kostnaður hefði verið hindrun fyrir margar konur og með lækkun komugjalds væri jafnara aðgengi tryggt.

Um 200 konur greinast árlega með brjóstakrabbamein og um 50 látast úr sjúkdómnum. Með skimun er hægt að greina mein á frumstigi og auka þannig lífslíkur. Þá verður meðferð einnig einfaldari fyrir konurnar og ódýrari fyrir samfélagið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert