Ásgeir Jónsson Seðlabankastjóri minntist á Íslendinga á Tenerife í erindi sínu á fjármálaráðstefnu Sambands íslenskra sveitarfélaga á Hilton Reykjavík Nordica fyrr í dag.
Hann sagði Ísland vera í sérflokki í Evrópu varðandi hagvöxt því önnur evrópsk lönd hefðu ekki náð sér almennilega eftir kórónuveirufaraldurinn.
Benti hann á að 20% hagvöxtur hefði verið hérlendis síðustu ár sem væri gríðarlega mikið stökk og það hefði reynt á þanþol Íslendinga, þar á meðal í sveitarfélögunum. Hagvöxturinn væri meðal annars rekinn áfram með miklum innflutningi á fólki.
Ásgeir sagði Íslendinga einnig vera í algjörum sérflokki varðandi launahækkanir en að mjög erfitt væri að ná verðstöðugleika þegar launin hækkuðu eins hratt og raun ber vitni.
Hann sagði háum vöxtum vera ætlað að bregðast við miklum hagvexti, launahækkunum og uppgangi í samfélaginu. „Ég get sagt ykkur annað að þjóðirnar í Evrópu hafa enga samúð með okkur þegar við ræðum þetta,“ sagði seðlabankastjóri.
Hann talað næst um raunlaunin í Evrópu og sagði fólk á meginlandi Evrópu ekki hafa fengið verðbólguskellinn bættan, þar á meðal í Svíþjóð og Þýskalandi. Þar væri sjáanlega minni kaupmáttur en hér á landi.
„Þetta mættu Íslendingar hafa í huga þar sem þeir sitja saman og kvarta á Tene eða hvar sem við komum saman, vegna þess að við verðum að velja og hafna,“ sagði Ásgeir og uppskar hlátur í salnum.
Hann sagði Íslendinga hafa lent mjög illa í því í Covid, sem hefði verið ein mesti skellur sem hefði dunið á Íslandi síðan í seinni heimsstyrjöldinni. Við því hefði verið brugðist með samhentu átaki Seðlabankans og stjórnvalda.
Ásgeir benti á að illa hefði gengið að ná verðbólgunni niður hérlendis og nefndi að eldsumbrotin á Reykjanesskaga, þar sem finna þurfti önnur heimili fyrir 1% þjóðarinnar, hefðu haft sitt að segja og sett ákveðinn þrýsting á kerfið.
Hann talaði um að gríðarlega mikil eiginfjármyndun hefði átt sér stað hérlendis í gegnum húsnæði en að vaxtagjöldin hefðu líka hækkað. Hann kvaðst vita að fólk fyndi fyrir þeim en að flest heimili landsins væru með fjármálin í tiltölulega góðu lagi. Staðan væri hugsanlega verst á leigumarkaði.
Ásgeir nefndi að Seðlabankinn hefði hækkað vexti 14 sinnum. „Ég veit að þetta hefur verið mjög sársaukafullt meðal en það er eina meðalið sem við höfum.“
Hann sagði verðbólguna vera að ganga niður og ef húsnæði væri tekið út fyrir sviga væri hún nálægt markmiði. Verðbólguvæntingar væru samt of háar, sem lýsti sér í því að kostnaðarhækkanir færu of hratt út í verðlagið.
Hann kvaðst vona að niðursveiflan yrði væg og að við myndum sjá kaldara hagkerfi án vandræða, m.a. að vanskil eða gjaldþrot myndu ekki aukast.