Jódís Skúladóttir, þingmaður Vinstri grænna úr Norðausturkjördæmi, segir í færslu á Facebook að henni hafi verið hafnað af flokknum öðru sinni á einum mánuði.
„Í dag varð ljóst að ég mun ekki verða oddviti í mínu kjördæmi og hef ég afþakkað sæti ofar en það fimmta. Ég var tilbúin að taka þann slag en eftir að ljóst varð að sú yrði ekki niðurstaðan met ég það sem svo að fjölskylda mín eigi meiri fyrirsjáanleika og festu skilið en pólitíkin meðal almennings en innan VG,“ segir Jódís.
„Það er líklega einhvers konar met að vera hafnað af sínu eigin stjórnmálaafli 2x í sama mánuði og eftirspurnin eftir mér virðist talsvert meiri meðal almennings en innan VG,“ segir Jódís á Facebook-síðu-síðu sinni, en Jódís bauð sig fram til varaformanns VG gegn Guðmundi Inga Guðbrandssyni á landsfundi flokksins í september.
Hún segist þó áfram styðja flokkinn til góðra verka og segist ekki taka þessum vendingum nærri sér. Hún segist styðja félaga sína í VG til góðra verka.
„Ég hætti örugglega aldrei að vera öfga-femínisti, náttúruverndarsinni og grjóthörð vinstri kona. Kannski býð ég fram krafta mina sienna þegar bornin eru stærri og aðstæður auðveldari,“ segir Jódís m.a. í færslunni.