Lögreglustjóri á Suðurnesjum mælir alls ekki með því að fólk gangi á fjöllin Þorbjörn, Hagafell eða önnur nærliggjandi fjöll í nágrenni Grindavíkurbæjar. Segir hann opin svæði í nágrenni bæjarins vera víðsjáverð og hafi ekki verið skoðuð sérstaklega og að opnar sprungur liggi við Nesveg og á Hópsnesi.
Þetta kemur fram í tilkynningu lögreglustjórans á Suðurnesjum, Úlfari Lúðvíkssyni, til fjölmiðla.
Greint hefur verið frá að hættumat Veðurstofunnar helst óbreytt frá því í síðustu viku og tekur nýtt hættumat gildi 12. nóvember, að öllu óbreyttu.
Segir lögreglustjórinn ferðamenn á eigin ábyrgð í náttúru Íslands og að svæði norðan bæjarmarkanna séu varasöm.
„Íbúar, starfsmenn og aðrir sem dvelja inn á hættusvæði gera það á eigin ábyrgð. Hver og einn verður að bera ábyrgð á eigin athöfnum eða athafnaleysi. Lögreglustjóri tekur fram að Grindavík er ekki ákjósanlegur staður fyrir barnafólk eða börn að leik. Þar er ekkert skóla- og íþróttastarf,“ segir í tilkynningunni.
Segir lögreglustjórinn að athygli ferðamanna sé vakin á viðvörunarskiltum við helstu útsýnisstaði þar sem svæðinu er lýst sem hættulegu.
„Á svæði sunnan Voga og Reykjanesbrautar hefur verið leitað að sprengjum í gegnum tíðina. Það svæði er talið mengað af virkum sem óvirkum sprengjum sem geta valdið manntjóni ef þær springa en hiti eða hreyfingar geta haft þar áhrif. Staðsetning innan 300 metra frá miðpunkti stórrar sprengju getur valdið manntjóni. Á svæðinu eru fallbyssukúlur, sprengjuvörpur (Mortar) og æfingasprengjur,“ segir í tilkynningunni.
Nefnir Úlfar að það sé aðeins fyrir sprengjusérfræðinga að meta ástand og gerð þessara sprengna og ekki liggja fyrir nákvæmar upplýsingar um útbreiðslu eða stærð svæðisins en Landshelgisgæsla hefur þó dregið upp kort til upplýsingar.
„Inn á þessu svæði þurfa viðbragðsaðilar sem aðrir að halda sig við merkta gönguslóða. Vakin er athygli á þessari hættu með skiltum sem staðið hafa við upphaf gönguleiða í áratugi. Það þekkja heimamenn og útivistarmenn sem gengið hafa um svæðið. Nauðsynlegt er að vekja athygli á þessum staðreyndum. Það eru tilmæli lögreglustjóra til ferðaþjónustuaðila og þeirra sem veita erlendum ferðamönnum upplýsingar að koma þessum upplýsingum á framfæri við ferðamenn.“
Segir lögreglustjórinn að opið er í Bláa lóninu og á hótelinu í Grindavík Northern Light Inn.
Nefnir hann að á starfssvæði Bláa lónsins sé nú þéttriðið net gasmæla og að veðurstöð sé staðsett á einni byggingu lónsins.
„Eftirlit og viðbragð við hugsanlegri gasmengun er nú með allt öðrum hætti en áður hefur verið á starfssvæði Bláa Lónsins. Fulltrúar fyrirtækjanna sitja fundi aðgerðastjórnar og vettvangsstjórnar. Fylgjast þarf með opnunartímum á heimasíðum fyrirtækjanna. Þar getur þurft að rýma með skömmum fyrirvara en fyrirtækin starfa inn á skilgreindu hættusvæði Veðurstofu Íslands. Hættur á svæðinu eru taldar litlar eða mjög litlar við núverandi aðstæður,“ segir lögreglustjórinn.
Þá kemur fram að á óvissustigi almannavarna virkjast ekki valdheimildir lögreglustjóra samkvæmt lögum almannavarna og því fari framkvæmdanefnd vegna jarðhræringa í Grindavíkurbæ með stjórn, skipulag og framkvæmd verkefna sem hér segir:
„a. Starfrækslu þjónustuteyma sem samþætta þjónustu fyrir íbúa Grindavíkurbæjar, m.a. þegar kemur að skóla- og frístundastarfi, félagsþjónustu, barnaverndarþjónustu, þjónustu við eldra fólk, fatlað fólk og aðra viðkvæma hópa og stuðningi á sviði húsnæðis- og vinnumarkaðsmála. Verkefni þjónustuteyma eru m.a. að vinna tillögur og áætlanir um stuðning við íbúana og eiga samráð við móttökusveitarfélög, stjórnvöld og aðra aðila um þjónustu við þá.
b. Töku ákvarðana um rekstur þjónustumiðstöðvar fyrir íbúa Grindavíkurbæjar og starfrækslu hennar eftir atvikum.
c. Gerð áhættumats fyrir þéttbýli í Grindavíkurbæ í samvinnu við ríkislögreglustjóra.
d. Yfirumsjón með framkvæmd nauðsynlegra viðgerða til að tryggja virkni, rekstur og afhendingaröryggi innviða, eftir því sem við á og fellur undir ábyrgðarsvið Grindavíkurbæjar.
e. Könnun á jarðvegi.
f. Yfirumsjón með framkvæmd nauðsynlegra viðgerða á götum, stígum og opnum svæðum sem Grindavíkurbær er ábyrgur fyrir.
g. Yfirumsjón með vernd lausafjármuna í Grindavíkurbæ eftir því sem við á, að mati framkvæmdanefndarinnar.
h. Framkvæmd aðgangsstýringar í Grindavíkurbæ í samvinnu við lögreglu.
i. Upplýsingamiðlun til íbúa Grindavíkurbæjar og hagaðila um stöðu mála og framgang verkefna sem nefndin sinnir.“
Segir Úlfar að enn séu hættur á svæðinu og að aðstæður innan og utan hættusvæða geti breyst með litlum fyrirvara.
Þá geti hættur einnig leynst utan merktra svæða.
„Flóttaleiðir frá Grindavík eru um Suðurstrandarveg, Nesveg, Bláalónsveg og Grindavíkurveg. Flóttaleiðir frá Bláa Lóninu eru um Bláalónsveg og Grindavíkurveg. Arfadalsvíkurvegur er lokaður einbreiður malarvegur sem getur nýst ef til rýmingar kemur.“
Þá nefnir lögreglustjórinn að, til að vekja athygli fólks, settar haf verið upp þrjár viðvörunarflautur í Grindavík.
Þá eru einnig viðvörunarflautur við Bláa lónið og við HS Orku í Svartsengi og segir hann viðvörunarflauturnar hafa verið notaðar með góðum árangri.
„Fáir Grindvíkingar kjósa að dvelja í bænum næturlangt. Lögreglustjóri getur ekki ábyrgst öryggi þeirra inn á hættusvæði.
Viðbragðsaðilar eru við störf í Grindavík og lögregla og slökkvilið sinna lögbundnu eftirliti í bænum eins og verið hefur. Þá er sjúkrabíll staðsettur í Grindavík alla daga á dagtíma.“