Segir fánann munu blakta við hún „þar til Úkraína sigrar“

Einar Þorsteinsson borgarstjóri sagði í ræðu sinni á þingi Norðurlandaráðs fyrr í dag, þar sem málefni friðar á Norðurlöndunum voru rædd, að fáni Úkraínu myndi blakta við ráðhús Reykjavíkur þar til Úkraína hefur sigrað í stríði sínu við Rússa.

Vék Einar í ræðu sinni að því að mikilvægi norðurslóða hafi aldrei verið meira. Einnig bauð hann af sama tilefni Volodimír Selenskí og fylgdarlið hans velkomið til landsins og lét þessi orð falla í framhaldinu.

Þá áréttaði hann að Reykjavíkurborg hefði tekið skýra afstöðu strax í upphafi stríðs með Úkraínumönnum.

„Úkraínski fáninn hefur hangið við hún síðan árásin var gerð og mun gera það áfram þar til Úkraína hefur sigrað,“ segir Einar og og fékk í framhaldinu lófaklapp frá þinggesta. Sjá má orð Einars í myndskeiðinu að ofan.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert