Sex náttúru- og dýraverndarsamtök hafa sent Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands, áskorun um stöðva þau áform forsætisráðherra að ætla að gefa út hvalveiðileyfi á lokadögum tímabundinnar starfsstjórnar.
„Kæra frú forseti Halla Tómasdóttir,
Við biðlum til þín að stíga inn í og reyna að beita þínu áhrifavaldi til stöðva þau áform forsætisráðherra að ætla að gefa út hvalveiðileyfi á lokadögum tímabundinnar starfsstjórnar.
Við teljum þetta vera misbeitingu valds og langt út fyrir það verkefni sem þú samþykktir og gafst út, 15. október síðastliðinn, að starfsstjórn ætti einungis að gegna þeim störfum sem nauðsynleg eru við stjórn landsins.
Kannanir sýna að meirihluti landsmanna er á móti hvalveiðum. Þetta snýst því ekki einungis um viðkvæma hvalastofna og vernd þeirra heldur einnig um lýðræði og vilja Íslendinga.
Undirrituð samtök skora á forseta Íslands að ítreka fyrri yfirlýsingu um að verkefni starfsstjórnar sé að gegna nauðsynlegum störfum eins og að afgreiða fjárlög.
Ekki að taka umdeildar stefnumótandi ákvarðanir um dráp á langreyðum í þágu eins fyrirtækis. Stattu vörð um hvalina og þjóðina.“
Undir áskorunina skrifa:
Hvalavinir
Landvernd
Náttúruverndarsamtök Íslands
Samtök grænkera á Íslandi
Samtök um dýravelferð á Íslandi
Ungir umhverfissinnar