Ógnaði starfsmanni með hnífi

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti að venju mörgum útköllum í gærkvöld …
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti að venju mörgum útköllum í gærkvöld og í nótt. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Tilkynnt var um þjófnað í verslun í miðborginni og þegar starfsmaður ætlaði að ræða við þjófanna dró einn þeirra upp hníf og í kjölfarið hlupu þjófarnir á brott.

Málið er í rannsókn og telur lögregla sig hafa upplýsingar um hverjir gerendurnir eru.

Þetta var meðal verkefna lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu að því fram kemur í dagbók hennar frá klukkan 17 í gær til klukkan 5 í nótt.

Lögreglunni á lögreglustöð 2, sem sinnir Hafnarfirði, Garðabæ og Álftanesi, barst tilkynning um líkamsárás. Gerandinn hafði farið af vettvangi strax eftir brotið og málið er í rannsókn hjá lögreglu.

Skráningarmerki voru tekin af tíu ökutækjum, sem voru ótryggðar eða óskoðaðar í hverfi 4, sem er Grafarvogur, Mosfellsbær og Árbær.

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka