Á eftir að koma í ljós hvort málunum verði áfrýjað

Sveinn Andri Sveinsson, annar skiptastjóra þrotabúsins, í héraðsdómi er aðalmeðferð …
Sveinn Andri Sveinsson, annar skiptastjóra þrotabúsins, í héraðsdómi er aðalmeðferð hófst í október. mbl.is/Karítas

Sveinn Andri Sveinsson, skiptastjóri þrotabús WOW air, segir að verið sé að meta sýknudóm Héraðsdóms Reykjavíkur yfir stofnanda og stjórnarmönnum hins fallna flugfélags til greiðslu skaðabóta sem sam­svara fjár­hæð rift­un­ar­krafna upp á hátt í tvo millj­arða króna.

Dómur féll á föstudag en greiðslum frá WOW til ís­lenska rík­is­ins, nokk­urra er­lendra fyr­ir­tækja, flug­vall­ar­ins í Toronto og Tít­ans fjár­fest­inga­fé­lags, fé­lags í eigu Skúla, upp á sam­tals sem nem­ur um 780 millj­ón­um var rift. Til viðbót­ar við það bæt­ast drátta­vext­ir yfir fimm ára tíma­bil.

Í tveim­ur rift­un­ar­mál­un­um var kröfu þrota­bús­ins vísað frá eða mál­inu vísað frá dómi. Átti það meðal ann­ars um rift­un­ar­mál gegn bresk­um skatta­yf­ir­völd­um.

Í stuttu máli er um að ræða ell­efu rift­un­ar- og skaðabóta­mál­ sem þrota­búið höfðaði gegn stjórn­end­um WOW air og trygg­inga­fé­lög­um. Málið var um­fangs­mikið og flókið og máls­gögn þess þúsund­ir blaðsíðna.

Farið var fram á rift­un greiðslna til kröfu­hafa, og að for­stjóri og/​​eða stjórn­end­ur yrðu dæmd­ir til greiðslu skaðabóta sem sam­svara fjár­hæð rift­un­ar­inn­ar, þ.e.a.s. hátt í tveir millj­arðar. Skipta­stjór­ar þrota­bús­ins töldu greiðslur hafa verið gerðar á vafa­söm­um tíma í sögu fé­lags­ins og að kröfu­höf­um hefði verið mis­munað.

Kröfuskráin að lokast

„Að sumu leyti og að öðru leyti ekki. Það er bara eins og gengur. Við erum bara að skoða þetta og meta,“ svarar Sveinn Andri spurður hvort hann sé sáttur með dóminn. 

Hann segir það eiga eftir að koma í ljós hvort málunum verði áfrýjað. 

Aðalmeðferð málsins stóð yfir í um þrjár vikur með hléum. „Þetta var vertíð,“ segir skiptastjórinn. 

Nærri sex ár eru síðan WOW air varð gjaldþrota og var þrotabúið stórt. 

„Það er núna loksins að lokast kröfuskráin eftir að eitt ágreiningsmál, sem þrotabúið var ekki aðili að, kláraðist. Eignir eru fyrir löngu seldar og svo náttúrulega þarf bara að útkljá þessi dómsmál,“ segir Sveinn Andri. 

Þegar mbl.is náði tali af Skúla Mogensen, stofn­anda og fyrr­ver­andi for­stjóri WOW air, vildi hann ekki tjá sig um málið.

Skúli Mogensen, stofn­andi og for­stjóri WOW air og nú­ver­andi eig­andi …
Skúli Mogensen, stofn­andi og for­stjóri WOW air og nú­ver­andi eig­andi sjó­baðanna í Hvamms­vík, í dómsal í síðasta mánuði. mbl.is/Karítas
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert